21.04.2012 22:25

Fréttir

Úff, ég hef alls ekki verið nógu dugleg að koma með fréttir hingað inn eða yfir höfuð að uppfæra síðuna.
Svo ættli það sé ekki kominn tími á smá fréttir?

Lady litla fór á nýja heimilið sitt til Siggu og Alla og er búin að vera það í viku og gengur rosalega vel. Hún vill nú soldið ráða yfir Ösku en Aska er ekki alveg á því. En þetta er allt að koma og Aska að taka hana í sátt og Lady hefur það svo sannarlega gott.

King Arthur er svo seldur líka en hann fer núna næsta föstudag á sitt nýja heimi þar sem hann verður án efa dekur prinsinn.

Hinir strákarnir eru enn ólofaðir þó að margir hafi sýnt þeim áhuga. Svo þeir þrír leita enn að framtíðar heimili.
Hvolparnir komu vel út úr hvolpaskoðuninni. Þó ég segi sjálf frá eru þeir allir mjög lofandi. Hvað gerist síðar verður að koma í ljós.

29.03.2012 20:02

Ótitlað

Hér er nóg að gera og erum við enn svífandi um á bleiku skýi eftir sýninguna.

Loksins gefst mér tími til að setja myndir hérna af hvolpunum. Þessar myndir eru teknar þegar þeir voru rétt trúmlega 5 vikna en núna um helgina verða þeir 7 vikna svo ég þarf að fara að taka nýjar myndir.
Svo fara nú alveg að koma páskar og páskafrí svo það er kannski hægt að fara að uppfæra þessa síðu aðeins og bæta inn á hana ýmsum upplýsingum.


21.03.2012 15:30

Æðisleg helgi að baki

Loksins gefst mér tím til að setja inn færslu eftir sýninguna en það er sko búið að vera nóg að gera og erum við búin að vera í hálfgerðu spennufalli eftir sýninguna.

En sýningin var ekki áfallalaus. Dómarinn Jonny Anderson veiktist skyndilega rétt fyrir sýninguna og komst því ekki til landsins. Þessu var þó bjargað með að Christopher Bexon frá Englandi, sem meðal annars hefur dæmt 9 sinnum á Crufts, kom til landsins og dæmdi hundana okkar.

Á laugardeiginum sýndi ég nokkra hunda fyrir vini okkar.

Fyrst sýndi ég Pug skvísuna Konungs Nönnu Gígja.
Af 8 tíkum hlaut skvísan 1.einkunn og 3.sætið

Alveg óvænt fór ég svo inn í hring með Gígju Gretti í goti hjá Gígjuræktun:
1.einkunn, 2.sætið

Aftur gerðist það alveg óvænt að ég fór inn í hring með Höfðatúns París Rós í opnum flokki tíka.
Sú stutta var ekkert hrifn af dómaranum og gelti á hann þegar hann ættlaði að skoða hana.
Dómarinn sagði að þetta væri flott tík en því miður væri niðurstaðn 2.einkunn í þetta skipti.

Svo fór ég inn í hring með Höfðatúns Gismó.
Ég man ekki hvað það voru margir rakkar sýndir en Gismó hlaut 1.einkunn og 3.sætið.

Ég var mjög sátt með daginn emoticon

En þá var komið að sunnudeiginum þar sem silkyinn var sýndur.

Systurnar Erna og Karen sýndu Galdra Þoku og Galdra Golu fyrir mig í opnum flokki tíka. Þar voru 9 tíkur mættar til leiks.
Báðar hlutu þær 1.einkunn en ekki sæti.

Sjálf sýndi ég Hraunprýðis Ölpurós.
1.einkunn, 1.sæti og CACIB!
Ég var svo hissa og glöð með að litla skjóðan skildi vinna tíkurnar á sinni fyrstu sýningu að ég átti ekki til orð.

En þá var komið að rökkunum og sjá hver myndi keppa við Ölpurós um besta hund tegundar.

Sjálf sýndi ég Hraunprýðis Fífill "Erró" í opnum flokki rakka.
1.einkunn, 1.sæti og CACIB!
Þar með voru systkinin búin að taka sína flokka og þau eru ekki orðin tveggja ára.

En þá var komið að Hraunprýðis Eldi í meistaraflokki.
Eldur var með hugann við teppið allan tímann enda lóðatíkur á svæðinu og alveg sama hvað ég reyndi að ná sambandi við hann þá bara var hann ekki við.
En engu að síður 1.einkunn og 1.sæti en hlaut ekki seinasta CACIB-ið eins og ég var að vona.

Þannig að Alparós og Erró kepptu um besta hund tegundar. Karen stökk til fyrir mig og sýndi Erró.
Alparós varð svo besti hundur tegundar og átti að mæta í tegundarhóp seinna um daginn.

Ég sýndi svo ræktunarhóp sem saman stóð af Ölpurós, Erró og Eldi.
1.einkunn og mæta til úrslita seinna um daginn.

Ég var svo glöð með þetta gengi að ég var að springa úr monti.....

....en þetta var ekki búið.

Loks hófust úrslit í tegundarhópum og í terrier hópnum var auk Ölpurósar,glæileg Rat Terrier tík og flottur Westie strákur.
Alparós hinsvegar vann tegundarhópinn og var þar með komin í úrslit um besta hund sýningar.

Svo kom að ræktunarhópunum og auk minnar ræktunar voru hópar frá Höfðatúnsræktun - Papillon og Skeljaræktun - Pomeranian.
Ég var bæði hissa og mjög ánægð þegar hópurinn minn var valinn besti ræktunarhópur sýningaremoticon

En þá var komið að besta hundi sýningar.
Í úrslitum voru:
Pug - INTUCH Konungs Nubbur.
Pomeranian - Skelja Morfheus Megas
Enskur Bulldog - Gígju Daniela
Silky Terrier - Hraunprýðis Alparós
Am. Cocker Spaniel - Gígju Brown Baron Prins.

Þegar búið var að setja bulldoginn í 5.sæti, cockerinn í 4. og puginn í 3.sæti viðurkenni ég alveg að ég var nokkuð viss um að við Alparós fengum 2.sætið.emoticon emoticon
Við erum enn að ná þessu hérna.

Eftir sýninguna sagði dómarinn við mig að hún væri reglulega falleg og svo virðuleg tík að hann vildi gjarnann fylgjast með henni áfram og eins ræktuninni minni.
Þegar ég sagði honum að ég væri með hvolpa undan sömu mömmu varð hann mjög áhugasamur og forvitnaðist aðeins um þá.


Ein mynd af dömunni með verðlaunin sín.

Eftir að sýningin var búin fórum við í það að flytja hvolpana inn í tölvuherbergi sem er fyrir miðju húsi. Það er meiri umgangur hérna og mun auðveldara að opna bara grindina og hleypa þeim fram til að hlaupa á gólfinu.
Ég er búin að bæta nokkrum myndum við í myndaalbúminu en svo tók ég einstaklings myndir í gær sem ég á eftir að koma á netið...geri það fljótlega.

  • 1
Flettingar í dag: 88
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 58
Gestir í gær: 10
Samtals flettingar: 194278
Samtals gestir: 39119
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 06:04:59

Vafraðu um

Vor sýning Rex

atburður liðinn í

2 mánuði

Hraunprýðisræktun

Nafn:

Hraunprýðisræktun

Farsími:

869-9351

Staðsetning:

Suðurland - Hveragerði

Um:

Hraunprýðisræktun fékk ræktunarnafn sittsamþykkt af AVDH-UCI og HRFR haustið 2006 og leit okkar fyrsta got dagsins ljós 12.apríl 2007.

Tenglar