07.02.2012 20:52Styttist í gotJæja, þá koma smá fréttir héðan. Ég fór með Narníu í dag í rönken til að vita hvað von væri á mörgum hvolpum. Ástæðan var sú að hún blæs út og með fyrra got hennar í huga er allur varinn góður. Myndirnar sýndu 5 hvolpa og er von á goti um næstu helgi. Það verður því meira en nóg að gera á þessu heimili. Hvolpakassinn er kominn á sinn stað og er Narnía voða sátt við þetta allt saman, búin að skoða kassann, róta aðeins í honum og svona. Hún stendur sig svo vel. Étur eins og herforingi og er ánægð með lífið. Ekkert mál. En ég fór líka með Erró til dýra til að láta votta hnéskeljarnar þar sem ég hef fengið fyrirspurnir um að nota hann í ræktun. Hann er frír af losi og er því 4 hvolpurinn úr 3 gotinu okkar sem er greyndur og er sá fjórði sem er frír. En svo styttist í sýningu og þarf ég nú að fara að blása til sóknar hvað það varðar allt saman. Ég þarf að fara að æfa Ölpurós betur og eins þarf ég að kynna stelpurnar sem sýna Golu og Þoku fyrir þeim svo þær hagi sér vel hjá þeim. Svo þarf að æfa Erró og aðeins að mynna Eld á þetta. Þá á þetta allt að sleppa. Það er semsagt töliverð spenna hérna hjá okkur fyrir komandi goti og sýningu. Skrifað af Eigandi Flettingar í dag: 88 Gestir í dag: 6 Flettingar í gær: 58 Gestir í gær: 10 Samtals flettingar: 194278 Samtals gestir: 39119 Tölur uppfærðar: 17.5.2012 06:04:59 |
Vafraðu umEldra efni
Hraunprýðisræktun Nafn: HraunprýðisræktunFarsími: 869-9351Tölvupóstfang: hraunprydis@gmail.comStaðsetning: Suðurland - HveragerðiUm: Hraunprýðisræktun fékk ræktunarnafn sittsamþykkt af AVDH-UCI og HRFR haustið 2006 og leit okkar fyrsta got dagsins ljós 12.apríl 2007.Tenglar
|