Feldhirða og snyrting

Feldur Silky Terriers er sléttur og gljáandi og almennt flækist hann ekki mikið. Hinsvegar fá sumir hundar ullarkendann feld en hann myndar frekar flóka og er því nauðsynlegt að greiða þá fljótt úr.
Þessvegna er mælt með að bursta yfir feldinn daglega, það tekur ekki nema nokkrar mínútur.
Feldur hundanna vex mis hratt en við tveggja ára aldur er hægt að miða við að síddin sé komin.
Feldur hundsins má hinsvegar ekki vera það mikil að hann hefti hreyfingar hundsins. Feldurinn má ekki vera gólf síður og er þá miðað við að ljós sjáist undir feldinn.

Alment þarf feldur Silky Terriers ekki mikillar feldhirðu.
# Eins og áður sagði er mælt með að greiða yfir feldinn daglega. 
# Nó er að baða hundinn á tveggja vikna fresti. Hitastigið á biliunu 35°-38°C. Notist þá við hundasjampó fyrir silki feld, rakagefandi sjampó, og næringu. Næring er oft í sjampóinu og því kannski ekki nauðsynlegt að nota næringuna alltaf. Mikilvægt er að greiða alla flóka úr hundinum fyrir bað þar sem óhreynindi sitja föst í flókunum.
# Mikilvægt er að klippa neglur reglulega og er þá miðað við að neglurnar eigi ekki að snerta gólfið.
Alment er Silky-inn ekkert hrifinn af þessum naglaklippingum svo þið skuluð vera viðbúin átökum!

Fyrir sýningar er best að láta hundasnyrti snyrta hundinn en þess á milli er vel hægt fyrir þig að halda snyrtingu hundsins við.

Það sem þú þarft er:
* Bursti
* Greiða
* Lítil rakvél eða bartskeri. Til dæmis eins og þessi hér: Mynd
* Fínleg snyrtiskæri. Fást í flestum dýrabúðum.
* Naglaklippur
* Blóðstoppari
* Bómul
* Blásari. Hárblásarinn þinn gengur alveg.
* Gott er að eiga snyrtiborð en það er alls ekki nauðsynlegt. Búðu þér samt til góða vinnu aðstöðu, eitthvað borð, þar sem hundurinn getur verið uppá.

Þegar þú snyrtir fæturnar á Silky Terrier er nó fyrir þig að klippa hárin sem ná niður fyrir fótinn.
 Eins og sést á þessari mynd.
Þú notar snyrtiskærin við þetta.

Fyrir lengra komna eru hárin frá hækli og niðrur klippt snöggt.
 
Fyrir klippingu.                                                Eftir klippingu
Byrjað er að klippa hárin með snyrtiskærunum. Þá eru þau hár sem eru klippt greydd fram og haldið milli tveggja fingra vinstri handar og klippt upp við fingurnar. Því næst er fóturinn rakaður með rakvélinni og fóturinn mótaður. Gætið ykkar samt á úlfaklónni sem er á innanverðum framfótum. Sumir hundar hafa einnig þessa kló á afturfótum.
Ekki þvinga rakvélina. Haldið mjúklega á henni og rennið í gegnum feldinn. Ef það er ekki gert er hætta á að það komi för eftir rakvélina eða að þið særið hundinn.
Munið að klippa hárin undir þófunum. Ekki bara bætir það grip hundsins heldur getur of loðinn þófi heft hreyfingar hundsins. Notið snyrtiskærin.
Fótur Silky Terriers á að minna á kattarloppur.

Þegar eyrun eru snyrt er best að greiða hárin frá eyranu. Ná svo góðu taki á eyranu og nota rakvélina til að raka eyrað frá höfði í átt að eyrnarbroddinum. Eyrað er bæði rakað að utan sem og að innan.
Eftir það eru hárin í kringum eyrað klippt. Þá er klippt frá eyrnarflipa og út eftir eyranu. Gætið ykkar á brúnum eyrans að klippa ekki eða raka í þau. Eyrun eru mjög blóðrík og því getur blætt mikið úr eyranu. Farið gætilega.
 
Snyrt eyra á Silky Terrier.

Milli augna hundsins er kliftur það sem kallað er "þríhyrningur" sem er í raun bara öfugt V. Þetta er gert svo að hárin vaxi ekki fyrir augu hundsins.
Notið snyrtiskærin og klippið alltaf frá augunum. Einnig er aðeins klippt undir augun.

Búið að snyrta milli augna. Sumir nota þynnngarskæri ofan á trínið til að fela mestu skæraförin.

Skottið á að vera snöggt. Til að ná þessu sem best er best að halda hárinu á skottinu með tveimur fingur alveg upp við beinin í skottinu og klippa hárin sem eru umfram. Skottið á ekki að hafa fjaðrir. Þær á að klippa í burtu.
Einnig er gott að snyrta aðeins hárin í kringum rassinn.
 
Þessi hundur er að vísu skottstífður. Eingu að síður sérst hvernig skottið er þegar það er snyrt.

Endið á að klippa hárin á trýninu. Miðið við vígtennur hundsins en hárin fyrir framan vígtönn eiga að vera snögg. Notið snyrtiskærin.

Seinast en ekki síst er svo að klippa neglur og hreynsa eyru.
Silky Terrier er með svartar klær og því erfitt að sjá hvar kvikan er og hversu langt má klippa.
Gott er að miða við þar sem klóin beygist og klippa því í beyjuna. Þar ertu oftast örugg/ur.
Lendir þú í því að klippa í kvikuna og það blæðir skaltu halda ró þinni, setja blóðstoppandi duftið á þetta og halda áfram að klippa næstu klær.
Ef þér bregður og þú reynir í fáti að stoppa blæðinguna og vorkenna hundinum er allt eins líklegt að þú getir aldrei klippt neglurnar á hundinum. Hann mundi sennilega leifa öðrum það samt.

Þegar þú hreynsar eyrun getur þú notað bómul, sumir nota eyrnapinna. Passaðu bara að fara ekki of langt í hlustina. Hundar geta vel fengið eyrnabólgur og stafar það oft vegna óhreyninda í eyra.

Heimildir:
Þessi pistill er flest allur unnin upp úr efni sem ég fann á google.is fyrir utan að hafa deilt minni reynslu með að klippa mína hunda sem og annara.
Myndir eru fengnar af google.is - myndaleit.
Flettingar í dag: 88
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 58
Gestir í gær: 10
Samtals flettingar: 194278
Samtals gestir: 39119
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 06:04:59

Vafraðu um

Vor sýning Rex

atburður liðinn í

2 mánuði

Hraunprýðisræktun

Nafn:

Hraunprýðisræktun

Farsími:

869-9351

Staðsetning:

Suðurland - Hveragerði

Um:

Hraunprýðisræktun fékk ræktunarnafn sittsamþykkt af AVDH-UCI og HRFR haustið 2006 og leit okkar fyrsta got dagsins ljós 12.apríl 2007.

Tenglar