Ást: Er ofsaleg ástúð sem gefin er hvenær sem er og án þess að þér sé sagt að gera það. Besta leiðin til að sýna ást þína er að dilla skottinu. Ef þú ert heppin/nn mun viðkomandi endurgjalda ástina.
Halla sér uppað eða hoppa á: Viðbrögð góðra hunda við skipuninni "sestu". Sérstaklega ef eigandi þinn er í fínu fötunum á leiðinni út. Einstaklega áhrifaríkt á svartar flíkur.
Heyrnarleysi: Er sjúkleiki sem hrjáir hunda þegar eigandinn vill að þú komir enn en þú vilt vera úti. Einkenni eru meðal annars að horfa á eigandann og hlaupa í vitlausa átt eða leggjast niður.
Að hlaupa á: Besta leiðin til að fá athygli eigandans þegar hann er að drekka kaffi, te eða eitthvað annað.
Hundarúm: Hvaða mjúka hreina ábreiða sem er, eins og hvítt rúmáklæði í gestaherberginu eða nýbólstraður sófi í stofunni.
Reiðhjól: Tveggja hjóla æfingartæki, fundið upp fyrir hunda til að stjórna líkamsfitu. Til að ná mestum árangri er best að fela sig bak við runna, og skjótast þaðan út, gelta hátt og hlaupa með hjólreiðamanninum dágóðan spotta eða þar til maðurinn sveigir útaf og dettur í runna, þá skokkar þú ánægður í burtu.
Ruslakarfa: Þetta er hundaleikfang, fyllt með pappír, umslögum og gömlum nammibréfum. Þegar þér leiðist, veltu þá tunnunni og dreifðu pappírnum útum allt hús þar til eigandi þinn kemur heim.
Ruslatunna: Ílát sem nágrannarnir setja út einu sinni í viku til þess að athuga snilligáfu þína. Þú þarft að standa á afturfótunum og reyna að opna lokið með nefinu. Ef það tekst er þér verðlaunað með smjörpappír sem þú mátt tæta, nautabeinum til að eyðileggja og mygluðum brauðbitum.
Slef: Er það sem þú gerir þegar eigandi þinn er með mat en ekki þú. Til að gera þetta almennilega þarftu að sitja eins nálægt honum og þú getur og vera sorgmædd/ur í framan og láta slefuna detta í gólfið eða það sem betra er, í kjöltuna á eiganda þínum.
Sófasett: Eru fyrir hunda eins og servéttur fyrir fólk. Að máltíð lokinni er kurteisi að hlaupa fram og til baka í sófasettinu og nudda veiðihárunum í það.
Taumur: Ól/band sem fest er við hálsólina og gerir þér kleift að fara með eiganda þinn hvert sem þú vilt.
Þef: Algeng og kurteis skoðun sem þú notar til að heilsa öðrum hundum. Settu nefið á þér eins nálægt bakhluta hundsins og dragðu andann djúpt nokkrum sinnum eða þar til eigandi þinn segir þér að hætta
Þrumur: Eru merki um það að það sé að koma heimsendir. Mannfólkið er rólegt þegar á þrumuveðri stendur svo það er nauðsynlegt fyrir þig að vara þau við hættunni með því að skjálfa mikið, mása, hringsnúa augunum og hanga í löppunum á fólkinu og elta það útum allt.


Heimild: hvuttar.net
myndir: google.com