Við erum þriggja manna fjölskylda sem erum að rækta Silky Terrier.
Við erum staðsett í Hveragerði. Ræktunin okkar er lítil, enda viljum við geta einbeitt okkur að okkar hundum og þeim hvolpum sem fæðast hjá okkur.
Í dag eigum við 8 hunda fædda á árunum 2004-2010, Einn er þó í fóstri annarstaðar og eftir að Sigrún flutti út deildust hundarnir niður á okkur. Hér vinstramegin á síðunni má finna upplýsingar um hvern og einn hund undir hundarnir okkar.
Við mæðgur, Lilja og Sigrún, erum eigendurnir að Hraunprýðis ræktun og er markmið okkar að rækta skapgóða, heilsuhrausta hunda og sem líkasta ræktunarstaðli. Hundarnir okkar eru fyrst og fremst gæludýrin okkar og lifa eftir því. Þau búa með okkur inni á heimilinu, fá að kúra í sófunum og vera með í okkar daglega lífi.
Við erum félagar í HRFR og förum eftir þeirra reglum og standast hundarnir okkar ræktunarkröfur félagsins.
Sigrún heldur utanum síðuna okkar og reynir að koma því helsta sem gerist hér inn á síðuna.
Hundar hafa alltaf verið tengdir þessari fjölskyldu. Fyrsti hundurinn sem kom inn á okkar heimili var hinsvegar hann Kátur sem var blanda af border collie og íslenskum fjárhundi.
Við fengum hann alltof ungann eða fjögra vikna. Við vitum í dag að það er dæmt til að mistakast.
Okkar fyrsti hreinræktaði hundur var Hörku Táta sem var Íslenskur Fjárhundur.
Táta tók þátt í flest öllu sem við gerðum. Hún var yndisleg og var hún vel þekkt meðal barnanna í hverfinu sem öll heilsuðu alltaf Tátu ef Táta var úti með okkur.
Táta dó þann 19.3.2010, þá rúmlega 14 ára gömul.
Árið 2004 kom hinsvegar Silky Terrier rakkinn hann Moli inn á heimilið og hefur þeim bara fjölgað síðan. Moli varð til þess að við féllum fyrir þessari litlu, þrjósku en þó ljúfu tegund. Moli hefur yndislegt skap þó að sjálfsögðu hann láti vita þegar honum mislíkar eitthvað.
Ári síðar kom svo Galdra Gola, einnig Silky Terrier. Hún bræðir alla og hefur fólk sem er alment ekkert hrifið af Silky Terrier þurft að endurskoða sín mál eftir að hafa hitt Golu.
Enn fjölgaði í hópnum. Árið 2006 kom inn á heimilið alsystir Golu, hún Galdra Þoka. Þoka er prinsessa númer 1, 2 og 3. Hún á það til að vera soldið stríðin en alment er hún mjög yfirveguð og róleg.
Árið 2007 leit okkar fyrsta got dagsins ljós. Það got er undan Mola og Galdra Golu. Það er skemmst frá að segja að við héldum eftir einum hvolpinum sem ber nafnið Hraunprýðis Narnía Eik. Hún er yndisleg tík. Afar gegnin og auðvelt að kenna henni. Hún varð því miður mjög hrædd eftir stóra suðurlandsskjalftan 2008 þannig að hún er afar varkár gagnvart ókunnugum en hún mun aldrei gera flugu mein.
Ár 2008 eignaðist Gola okkar annað got. Úr því goti er hann Hraunprýðis Eldur sem er hér á heimilinu líka. Hann er mjög fjörugur hundur og vinur allra.
Okkar þriðja got leit dagsins ljós í ágúst 2010. Það got er undan Hraunpýðis Narníu Eik. Við komum því svo fyrir að einn af þeim hvolpum er í okkar eigu en er í fóstri annarstaðar. Þetta er hann Hraunprýðis Fífill, kallaður Erró. Það óvænta gerðist svo að fjölskyldufaðirinn, sem hefur almennt látið okkur mæðgur um hundaeignina á heimilinu, stein lá fyrir hvolpinum sem eftir var og er svo komið að hann á þann hvolp ásamt Sigrúnu. Það er Hraunprýðis Kvistur.
Enn gerðist nokkuð óvænt í lok október 2011 þegar Alparós, undan Narníu, kom til baka frá eigendum sínum sem ekki gátu veitt henni heimili lengur, eins og gengur og gerist. Alparós var hinsvegar fljót að gera sig heimakomna og er ekki að fara neitt.
Ræktunin okkar er áhugamáls-ræktun og verður ekki hægt að ganga að hvolpum vísum, við framleiðum þá ekki.
Við viljum biðja áhugasama að hafa samband við okkur og kynna sér ræktunina og hundana okkar. Okkur er ánægjan að leifa ykkur að hitta þá áður en ákvörðun er tekin um að fá sér hvolp.
Allir okkar hundar eru sýndir og höfum við notið hjálpar vina okkar við að geta sýnt alla hundana.
Vinir okkar eiga mikklar þakkir skyldar fyrir alla þá hjálp sem þeir hafa veitt okkur bæði við að hjálpa okkur að sýna hundana og við að taka á móti gotunum okkar. Þetta eru vinir í raun!
Það er vilji okkar að geta hjálpað og leiðbeint hvolpakaupendum, sé þess óskað, og erum við hæst ánægð þegar til okkar er leitað. Einnig höfum við aðstoðað eigendur sem eiga hund undan rökkunum okkar.
----------------------------------------------------------------------
Fyrir frekari upplýsingar hafið samband á netfangið hraunprydis@gmail.com eða hringið í síma 869-9351
Hraunprýðis ræktun©